Guðrún Vald.
- þegar andinn svífur yfir
mánudagur, 2. nóvember 2009
Barnaljósmyndun
Ég auglýsi hér með barnaljósmyndun á góðu verði, endilega kíkið á gudrunvaldimarsdottir.blogspot.com/



miðvikudagur, 13. maí 2009
Eurovision #1
Torfi hafði það ansi gott við Eurovision áhorf í gærkvöldi. Hann fékk snakk, Cheerios og rúsínur, og kom sér svona líka vel fyrir í sófanum til að horfa á. Honum fannst ekkert verra að vera buxnalaus.
Ég tek það fram að þessi athygli hans entist ekki mjög lengi, eiginlega bara þangað til að rúsínurnar kláruðust úr skálinni.

Annars fannst mér Jóhanna bara standa sig ágætlega, hún var sakleysin og góðmennskan uppmáluð, ljóshærð og voða Íslensk. Mér finnst kjóllinn hennar samt alveg hræðilegur en backdroppið var fínt. Hlakka til laugardagsins.

Flokkar:

sunnudagur, 10. maí 2009
Snuðnotkun
Ég á lítinn strák sem sofnaði áðan án þess að vera með snuðið sitt. Í hálft ár núna hefur hann ekki fengið snuð nema þegar hann sefur og fyrir nokkrum vikum hætti hann að sofa með það á daginn en hefur fengið það með sér í rúmið á kvöldin.
Í kvöld gleymdist að ná í það fyrir svefninn og þar sem hann kvartaði ekki ákváðum við að vera ekkert að ná í það og drengurinn söng sig bara í svefn hjá pabba sínum. Hann er ótrúlega stór og duglegur!

Flokkar:

mánudagur, 27. apríl 2009
g5

g5
Originally uploaded by Gudrun Vald
Myndir af verkum vöruhönnunarnema á útskriftarsýningu LHÍ 2009 eru komnar á flickr.

Lokaverkefnið mitt er hillukerfi (g5) gert úr mismunandi kössum sem pakkast saman hver ofan í annan fyrir lítil rými og flutning en hægt er að dreifa úr til að mynda eina stóra hillu eða í fleiri smærri þegar pláss leyfir og þörf er á meira geymsluplássi.

My final project from The Iceland Academy of the Arts is a shelf system called g5 that's made of different sized boxes that fit inside each other for small spaces and transport but can be arranged into one big shelf or many small ones for bigger spaces or when more storage units are needed.
mánudagur, 30. mars 2009

frá New Math eftir Craig Damrauer

Flokkar:

mánudagur, 23. mars 2009
Mánuður eftir!
Í tilefni þess að nú er aðeins mánuður í opnun útskriftarsýningarinnar ætla ég að telja upp það sem ég hlakka mest til að gera þegar skólinn er búinn.

  • Sofa
  • Fara með Torfa í sund, á bókasafnið, í húsdýragarðinn etc...
  • Lesa bækur mér til skemmtunar.
  • Fara í IKEA.
  • Plana brúðkaup.
  • Fara uppí bústað.
  • Æfa af enn meiri krafti.
  • Horfa á sjónvarp á kvöldin án þess að hafa samviskubit.
  • Almennt hætta að hafa samviskubit þegar ég er ekki að læra.
  • Hitta vini og fjölskyldu.
  • Og njóta þess að það er að koma sumar!
Opnunin verður sem sagt 23. apríl næstkomandi á Kjarvalsstöðum og mun sýningin standa opin til 4. maí fyrir utan kosningadaginn 25. apríl.

Flokkar: ,

sunnudagur, 8. febrúar 2009
Ljósmyndafikt
Ég er búin að eyða kvöldinu í að fikta og leika mér með ljósmyndir því ég datt inná síðu sem breytir myndum eins og þær væru gamlar. Það minnti mig á lítið forrit sem ég náði í fyrir einhverju síðan sem gerir myndir að polaroid, eða poladroid.



Svo bætti ég myndum inn á flickr, mæli með að allir setji myndir inn á flickr....hint hint.

Flokkar: